TENNISKLÚBB VÍKINGS
Umgengisreglur
- Opnunartími tennisvellina er frá 08:00 til 22:00 nema keppni dragist fram yfir þann tíma.
- Vellirnir eru til afnota af meðlimum klúbbsins, nemendum og gestum Tennisklúbbs Víkings
- Tennisspilarar þurfa að ganga hljóðlega inn á tennisvellina.
- Leyfðir eru einungis tennisskór samkvæmt alþjóðlega tennissambandsins –
bannað að spila á fótbolta / hlaupa / takka skóm. - Glerílát eru bönnuð á öllum tennissvæðum.
- Tyggigúmmí er bannað á gervigrasinu.
- Reykingar og notkun munntóbaks eru með öllu óheimil á tennissvæðinu.
- Brýna skal fyrir spilurum, þjálfurum og öðrum viðkomandi að sýna svæðinu virðingu og ganga vel um tennissvæðið.
- Tennisspilarar bera ábyrgð á tjóni og skemmdum þeirra á svæðinu.
- Allt rusl skal setja í rusladalla á svæðinu.
- Áfengisauglýsingar eru með öllu óheimilar á svæðinu sama á við um vörumerki áfengistegunda.
- Öll notkun línuskauta, hlaupahjóla, hjólabretta og reiðhjóla er bönnuð inni á gervigrasinu.
- Ekki skal spila tónlist á svæðinu á meðan aðrir eru að spila og eftir kl.21.30
- Öll gæludýr eru bönnuð á svæðinu.
- Tennisspilarar og gestir þeirra sem fylgja ekki ofangreindum reglum verða beðnir um að fara án endurgreiðslu.
Stjórn Tennisklúbbs Víkings
Athugasemdir
Fréttasafnið