Tennisskóli Reykjavíkur – vor 2026
5. janúar – 10. júní 2026 (æfingar í Kópavogur og Tennisklúbbur Víkings) og
5. janúar – 10. júní 2026 (æfingar í Réttarholtsskóli og Tennisklúbbur Víkings)
s.820-0825
tennis@tennis.is
Um Tennisskóla Reykjavíkur
Markmið okkar er að tryggja öllum vandaða kennslu í skemmtilegu umhverfi með áherslu á framfarir hvers nemenda fyrir sig. Tennisþjálfarar eru Raj K. Bonifacius, sem hefur þjálfað landsliðið í 30 ár og er með hæstu þjálfararéttindi frá Alþjóða Tennissambandsins (ITF Level 3) & Professional Tennis Registry (Professional); Rafn Kumar Bonifacius hefur 15 ára reynslu sem þjálfari með tennisþjálfara réttindi frá Tennissambandi Íslands og núverandi Íslandsmeistari.
Æfingar
Æfingarnar eru haldnar á þremur stöðum – íþróttahús Réttarholtsskóla í Reykjavík (Réttarholtsvegi 21-25, 108 Reykjavík), Tennisklúbbur Víkings (Traðarland 1, 108 Reykjavík) og Tennishöllinni í Kópavogi (Dalsmári 13, 201 Kópavogur). Tennisskólinn skaffar spaðar & bolta en það sem þarf að eiga eru innanhúss íþróttaskór og leikfimisföt. Æfingar eru opnar fyrir alla. Æfingatímar eru frá kl.16-20 í Íþróttahús Réttarholtsskóla í Reykjavík og Tennisklúbbur Víkings á Mánudögum og Fimmtudögum og frá kl.15.30-18.30 á Þriðjudögum, Miðvikudögum, Föstudögum og frá kl.10.30-12.30 á Sunnudögum í Kópavogi.
Kostnaður
Æfingatímabilið er frá 5.janúar til 10.júní 2026 og verður páskafrí í mars / apríl. Hægt er að velja um fjölda æfingatíma og miðast upphæð æfingagjalda við fjölda tíma og innifalið er Wilson tennisspaði, Wilson tennisbol og 3 boltar fyrir þeim sem eru að byrja –
Réttarholtsskóla æfingar
| Æfingar / viku | Æfingagjald |
| 1 | 71.500 kr. |
| 2 | 114.500 kr. |
| 3 | 143.000 kr. |
| 4 | 168.000 kr. |
Tennishöllin æfingar
| kl. / viku | 5.janúar – 10.júní 2026 |
| 1.5 | 85.500 kr. |
| 2 | 107.000 kr. |
| 3 | 131.500 kr. |
| 3.5 | 143.500 kr. |
| 4.5 | 165.500 kr. |
| 5 | 174.500 kr. |
| 6 | 191.500 kr. |
| 6.5 | 201.000 kr. |
| 8 | 223.500 kr. |
| 9 | 236.500 kr. |
| 11 | 246.000 kr. |
Hjá Tennisskóla Reykjavíkur getur þú nýtt þér þá styrki sem öllu bæjar- og sveitarfélögin bjóða upp á.
Athugasemdir
Fréttasafnið