Tennisklúbbur Víkings – sumar 2024


TENNISKLÚBBUR VÍKINGS SUMAR 2024
1.maí  – 30.september 

Tennisklúbbur Víkings
Traðarland 1, 108 Reykjavík
s.820-0825
tennis@tennis.is

TENNISSKÓLI FYRIR 8-16 ÁRA
Tennisklúbbur Víkings verða með tennisnámskeið bæði fyrir byrjendur og ungt afreksfólk. Tennisnámskeiðin fara fram á nýju tennisvöllum Tennisklúbbur Víkings, Traðarland 1, 108 Reykjavík í Fossvogsdal. Byrjendur kynnast grunnatriðum tennisíþróttarinnar í formi léttra æfinga og leikja. Krakkar sem ljúka tveggja vikna námskeiði læra „Míni Tennis“ sem er grunnstigsleikur fyrir byrjendur. Einnig helstu reglur í tennis og hvernig á að telja í tennisleik.   Námskeiðið er haldið virka daga kl. 9–12 og/eða kl. 13–16. Krakkarnir verða að koma með nesti í skólann og það er einn kaffitími fyrir og eftir hádegi. Muna að klæða börnin eftir veðri. Námskeiðsgjald er 35.400 kr.  og innifalið er Wilson tennisspaði, tennis bolur og 3 boltar.    Veittur er 10% systkinaafsláttur og 20% afsláttur ef sótt er um fleiri en eitt tveggja vikna námskeið. Mögulegt er að skrá þátttakendur viku í senn. Þá kostar vikan 22.400 kr.  og fylgja spaði, bol og boltar. Stakur dagur kostar 5.000 kr. (spaði, bol og boltar ekki innifalin).

AFREKSPRÓGRAMM
Fyrir þá sem eru nú þegar með ágætan grunn í tennis og vilja ná miklum framförum á stuttum tíma, sérstaklega með tilliti til árangur í mótum. Lögð er áhersla á íþróttamannslega hugsun og viðhorf, fótavinnu, tækni, herkænsku og þrek.   Á sumrin er hægt að ná góðum framförum og því mælum við með að sem flestir æfi með okkur eins mikið og þeir geta í sumar.  Æfingar eru frá  kl.9-12 og/eða kl.13-16, alla virka daga.  Vikan kostar 22.400 kr. hálfur dagur í viku og 35.400 kr. í tvær vikur. Wilson bolur og Wilson poki innifalið með tveggja vikna námskeið.

BYRJENDANÁMSKEIÐ FYRIR FULLORÐNA
Byrjendanámskeið      fyrir     fullorða    verða frá  kl. 19  til 20 í maí og kl.17.00-18.00 í júní / júlí á mánudögum og miðvikudögum.  Á námskeiðinu verður farið í grunnatriði tennisíþróttarinnar í bland við skemmtilega tennisleiki.  Tveggja vikna námskeið (4 skipti), Wilson tennisspaði  og boltar 32.500 kr. (20.000 kr. fyrir þeim sem á spaða og boltar)

SUMARÁSKRIFT (1.maí – 31.september)
Tennisklúbbur Víkings byður uppá sumaráskriftarkortum fyrir félögsmönnum.  Einstaklings sumarkort er 40.000 kr. eða 25.000 kr. fyrir þeim 18 ára og yngri.  Tveggja-manna kort er á 60.000 kr og Fjölskyldukort (5 manns) er á  75.000 kr. Sumarkorthafar fái aðgang að vallarbókunarvef.  Stakur vallartími eru á 5.000 kr. eða 2.500 kr. 18 ára og yngri (90 mín. í senn).     Vinsamlega athuga að nokkrar dagar verður fráteknir vegna móta:
13. – 19. maí – Reykjavíkur Meistaramót (einliða, tvíliða og tvenndar)
20. – 23. maí – Reykvísk Grunnskólamót (1. – 10. bekkir)
27. – 30. maí – TSÍ 100 – Stórmót HMR
3. – 5. maí – Reykjavíkur Meistaramót (liðakeppni)
6. júní – Roland Garros skemmtímót í tvíliðaleik
10. – 13. júní – TSÍ 100 – Stórmót Víkings
17. – 23. júní – ITF Icelandic Open +30 öðlingamót
24. – 30. júní – TSÍ Íslandsmót Utanhúss
1. – 7. júlí – TSÍ Íslandsmót liðakeppni meistaraflokk
8. – 12. júlí – TSÍ Íslandsmót liðakeppni ungling- og öðlingaflokkar
15. – 21. júlí – Tennis Europe TSÍ Icelandic Open U16
22. – 29. júlí – Tennis Europe TSÍ Reykjavík Open U16

Hægt að skrá sig hér fyrir neðan.  Nánari upplýsingar – s. 820 0825  /  info@tennis.is

Umsækjandi samþykkir eftirfarandi reglur - • Vellirnir eru til afnota af meðlimum klúbbsins, nemendum og gestum Tennisklúbbs Víkings. Vellirnir eru einungis ætlað til tennis iðkunar. • Opnunartími tennisvellina er frá 08:00 til 22:00 nema keppni dragist fram yfir þann tíma. • Félagsmeðlimir mega koma með gest / gesti með tilskildu gestagjaldi 2.500 kr. / mann (einliða) og 2.000 kr. / mann (tvíliða). Greiðsla leggst inn á reikning félagsins - 0313-26-10610, kennitala 700688-1439 og tilkynning sendist á netfangið gestir@tennis.is áður en tími hefst. • Í netbókanir á völlunum þarf að koma fram nafn meðlima og gesta við bókun. • Að hámarki eru 4 leikmenn leyfðir á vellinum í einu (nema á meðan á klúbbastarfi stendur). Áhorfendur eru ekki leyfðir á vellinum nema á afmörkuðu áhorfendasvæði. • Eingöngu þjálfarar félagsins mega vera með tennisþjálfun og námskeið á vellinum nema þegar um liðakeppni er að ræða eða leyfi frá félaginu. • Leyfðir eru einungis tennisskór samkvæmt alþjóðlega tennissambandsins – bannað að spila á fótbolta / hlaupa / takka skóm. • Tennisspilarar þurfa að ganga hljóðlega inn á tennisvellina. • Muna að sópa völlinn eftir notkun. • Brýna skal fyrir spilurum, þjálfurum og öðrum viðkomandi að sýna svæðinu virðingu og ganga vel um tennissvæðið. • Allt rusl skal setja í rusladalla á svæðinu. • Tennisspilarar bera ábyrgð á tjóni og skemmdum þeirra á svæðinu. • Glerílát eru bönnuð á öllum tennissvæðum. • Tyggigúmmí er bannað á gervigrasinu. • Reykingar og notkun munntóbaks eru með öllu óheimil á tennissvæðinu. • Áfengisauglýsingar eru með öllu óheimilar á svæðinu sama á við um vörumerki áfengistegunda. • Öll notkun línuskauta, hlaupahjóla, hjólabretta og reiðhjóla er bönnuð inni á gervigrasinu. • Ekki skal spila tónlist á svæðinu á meðan aðrir eru að spila og eftir kl.21.30 • Öll gæludýr eru bönnuð á svæðinu. • Tennisspilarar, gestir þeirra og áhorfendur sem fylgja ekki ofangreindum reglum verða beðnir um að fara án endurgreiðslu.
Vinsamlegast setja inn nöfn og kennitala þeirra

Comments are closed.